sunnudagur

Tilviljanir eða ákveðið fyrirfram???

Ég er manneskja sem trúi á líf eftir dauðann og eitthvað svona æðri máttarvald (ekki Guð samt eins og maður lærir um hann í kirkjunni). Ég hef ótrúlega oft velt því fyrir mér hvort hlutir séu bara tilviljanir eða hvað sko... Ég lenti nebbla í sotlu skrítnu áðan. Ég var að fara niðrí búð að kaupa Pepsi Max og mamma lét mig hafa 300 kall. Svo fór ég inn í herbergi bara svona til að líta á lúkkið og svona, ég meina, gerir maður það ekki alltaf? En allavega, svo arka ég galvösk í gegt mikilli hálku niðrí sjoppu og mæti á svæðið og þá er ekki til ein einasta 2 L Pepsí Max! Og ég alveg geggt pirruð notla, nennti ekki að labba útí sjoppu til að kaupa kók þannig að ég ákvað að kaupa tvær 1 L flöskur. En þær kostuðu sko 159 og ég fékk bara 300 kall hjá mömmu... en bíðið hæg. Þegar ég fór að kíkja á lúkkið þá var sko 50 kall á borðinu fyrir framan spegilinn og ég tók hann með mér en ég hef ekki hugmynd af hverju! Þannig að ég var með nóg fyrir báðum flöskunum!

Hmmmmmm.......
Nammi er verkfæri dauðans og ég trúi því að fita sé refsing fyrir gjörðir mans í fyrra lífi.

Núna þýðir ekkert annað en bara alsherjarátak. Þessi helgi er samt kannski ekki búin að vera svooo rosaleg. Ég borðaði soldið mikið nammi í gær en hreyfði mig alveg rosa mikið. Í dag borðaði ég líka nammi (tek það fram að ég keypti mér vínber og míní gulrætur og ætlaði að vera eitthvað svaka helþí en svo kom Arna með fullan poka af súkkulaði og nammi og vídjó...). En þessi helgi er ekki búin enn. Á morgun er afmæli og hvað skal ég þá gera????? ARRRG!

Fór á LOTR-TwoTowers í dag í Lúxus sal. Alveg ógeð flott mynd maður. Ég gat ekki hætt að pæla í því hvað Gollrir var vel gerður mar. Ég veit notla að hann var gerður eftir manni en samt! Þetta var alveg magnað! Og Elijah Wood.... Mmmmmm, svaka beib! En verst að hann virkar minni en hann er í myndinni og þá er eins og hann sé bara eitthvað barn. En hann er fallegur, hann má eiga það drengurinn.

Jöminn. Það mætti halda að ég hafi aldrei litið í spænskubók. Ég fékk fokking 4 í orðaforðaprófi í gær og Cherard var nú heldur betur ekki ánægður með mig. Eeeen... hann gefur mér einhverveginn pínu séns því ég er nottla alveg ný hjá honum... Bara hent í 303 til hans og hef aldrei þurft að læra neitt að viti fyrir spænskuna áður. Æj, hann er besta skinn... Nú er ég búin að vera eins og einhver apaköttur að brávsa vefinn til að finna einhverja orðaleiki og eitthvað til að hjálpa mér að læra þetta betur. Ég ætla sko að ná 7 eða yfir í meðaleinkunn á önninni. (reyndar ekki góð byrjun en ég meina, kommon)

90´s ball FG var hreinasta snilld. Ég dansaði eins og api útum allt og hætti ekki fyrr en síðasta lagið (Take me down to the paradise city, where the grass is green and the girsl are pretty... Oh, won´t you please take me home....) var búið. Ég var ekkert að pæla í neinum strákum og það var geggjað, bara ég og stelpurnar að djamma! Reyndar var einhver geggt sætur dyravörður sem stóð alltaf akkúrat í sjónmáli og þegar maður var ekki að lifa sig inn í lögin eins og sækó eða öskra með með lokuð augun, þá gat maður svona gjóað augunum á hann... Ég gerði nú einhverja misheppnaða tilraun til að reyna við hann og ég sá að þetta var ekki að virka þannig að ég fór bara aftur að dansa. Hann stóð sko í dyrunum og ég eikkað ætlaði bara að fá mér ferskt loft og stakk hausnum út um dyrnar, leit svo á hann og brosti og sagði 'Bara aðeins að anda'. Er ég ekki góð í því að koma með pikköpp línur á staðnum? En allavega. Ég hef ekki þetta höslaragen í mér enda er ég alltaf svo hrædd um að stráknum finnist ég vera einhver sækó eða eitthvað að ég reyni að sleppa þessu...

Alveg ekki að nenna að skrifa meira... Ég ætla bara að fara að halla mér svona...

Gúddí Nætí :o)

miðvikudagur

Svona onistlí, þá er ég búina að gefast upp á teljaranum!
Úfffff.... Þetta var svakalegt! Ég var að koma úr mínum fyrsta æfigaökutíma með pápa. Daddara...
Ég meina, þetta gekk ágætlega, ég klessti ekki á neitt, drap bara svona u.þ.b. 20 sinnum á bílnum (kommon, það er erfitt að skipta yfir á nýjan bíl bara allt í einu, sísona) og ég var meira að segja með tvo aukafarþega í bílnum, hann Brósa minn og Mágkonu. Þau voru ekki hrædd... en ég var það sko! Ég var ''pínd'' til að keyra inn á einhverjar bílasölur fyrir þau hjónin til að skoða bíla og ég alveg í einhverjum mínus þegar ég þurfti að taka af stað í brekku og ég var svo alveg tralveg upp í einum bílnum að ef ég hefði ekki tekið smá jógaöndun og slakað á áður en lagt var af stað aftur, þá hefði ég keyrt yfir hann! Djö... hvað þetta var stressandi!

Ég er komin með skólaleið dauðans! Það er samt alltaf einhver tíra í lífinu, maður á góða vini út um allt í skólanum og sætir strákar á hverju strái en aldrei í tímum hjá mér. Neiiii... ég er bara með einhverjum strákum sem ná mér kannski upp á mitti í hæð og lifa fyrir tölvuna (ég ætti kannski ekki að vera að segja mikið), en vonandi lagast þetta allt saman á næstu önn... :)

Ég er alveg að panikka út af þessu norsurum sem eru að koma til mín.... Einhverjar gellur sem taka á móti einhverjum norskum gellum voru að tala við þær á msn og ein þeirra sagði að Havar, strákur sem kemur til mín, sé bara beib dauðans! Og hvað á ég þá að gera??? Mæta þarna eins og einhver asni í lopapeysu og vaðstígvélum og kynna mig sem Elínu af Garðabæ... Jömundur! Mér ekki finnast gott. Ég myndi alveg sætta mig við að fá bara svona average gæja, enda eru það þeir sem ég fell fyrir... eða hvað?
Úfffff.... Þetta var svakalegt! Ég var að koma úr mínum fyrsta æfigaökutíma með pápa. Daddara...
Ég meina, þetta gekk ágætlega, ég klessti ekki á neitt, drap bara svona u.þ.b. 20 sinnum á bílnum (kommon, það er erfitt að skipta yfir á nýjan bíl bara allt í einu, sísona) og ég var meira að segja með tvo aukafarþega í bílnum, hann Brósa minn og Mágkonu. Þau voru ekki hrædd... en ég var það sko! Ég var ''pínd'' til að keyra inn á einhverjar bílasölur fyrir þau hjónin til að skoða bíla og ég alveg í einhverjum mínus þegar ég þurfti að taka af stað í brekku og ég var svo alveg tralveg upp í einum bílnum að ef ég hefði ekki tekið smá jógaöndun og slakað á áður en lagt var af stað aftur, þá hefði ég keyrt yfir hann! Djö... hvað þetta var stressandi!

Ég er komin með skólaleið dauðans! Það er samt alltaf einhver tíra í lífinu, maður á góða vini út um allt í skólanum og sætir strákar á hverju strái en aldrei í tímum hjá mér. Neiiii... ég er bara með einhverjum strákum sem ná mér kannski upp á mitti í hæð og lifa fyrir tölvuna (ég ætti kannski ekki að vera að segja mikið), en vonandi lagast þetta allt saman á næstu önn... :)

Ég er alveg að panikka út af þessu norsurum sem eru að koma til mín.... Einhverjar gellur sem taka á móti einhverjum norskum gellum voru að tala við þær á msn og ein þeirra sagði að Havar, strákur sem kemur til mín, sé bara beib dauðans! Og hvað á ég þá að gera??? Mæta þarna eins og einhver asni í lopapeysu og vaðstígvélum og kynna mig sem Elínu af Garðabæ... Jömundur! Mér ekki finnast gott. Ég myndi alveg sætta mig við að fá bara svona average gæja, enda eru það þeir sem ég fell fyrir... eða hvað?

sunnudagur

Ég var að koma heim úr svona einskonar kveðjudæmi hjá vinkonu minni... Hún er að fara til Þýskalands í skóla í marga marga mánuði... BÚhÚhÚhÚ ;(

Ég er búin að uppgötva listamanninn í mér. Mér finnst æði að skapa og dunda. Það er æðisgæði! Ég ætla að leggja það fyrir mig, því þá get ég gert eins og ÉG vil, þarf ekki að vera undir einhverjum bossi komin og get þá bara tjillað og skrifað mínar skáldsögur og málað mín listaverk í friði. Samt ætla ég að læra líka eitthvað sniðugt. Ég er jafnvel að spá í að fara í bókmenntafræði í háskólanum. Það væri ekki svo ónýtt :) En hvert fer maður ef maður ætlar að verða rithöfundur?

Fyrir nokkrum árum fór ég til læknis sem sagði mér að ég mætti ekki borða súkkulaði og lakkrís. Ég veit ekki alveg hvaða bjartsýni þetta var í honum að ætlast til þess að ég færi að hætta að borða bestasta nammi í heimi, en ég var ung og vitlaus og hlýddi lækninum audda. Enda var ég enn á því skeiði í lífinu að vera sátt við að fá hlaup og ís á nammidögum (var semsagt ekki búin að uppgötva unað súkkulaðsins). Þegar ég náði svo þeim aldri er oftast er kenndur við 'tán' féll ég á prófi læknisins og hef forðast hann allar götur síðan, dauðhrædd um að hann ráðist á mig og dæli upp úr mér. En allavega, í kvöld borðaði ég svo lakkrís í fyrsta skipti í langan tíma (og mikið af honum, jummjumm) og núna er hann að brjótast út í magaverk þess neðra (þá meina ég djöfullsins, ekki þess sem þið dónar voruð að hugsa!).

Jeg fæ að sofa út í fyrramálið, jeiiiiiii....!!!!!!

laugardagur

Ujjjj... Bara komin leitarvél á síðuna og allt! en teljarinn ætlar nú eitthvað að láta bíða eftir sér sem og vanalega.
Ég hef komist að því að það er ekkert nema yndislegt að vera ekki skotin í neinum. Þá þarf maður ekki að vera neitt að pæla í því hvernig maður er í kringum strákinn, bara tjilla með honum.

Ég er að fara til Noregs í maí en fyrst koma hingað tveir (jafnvel þrír) sætir norsarar inn á heimilð! Að hugsa sér! ég fæ að vera með sæta stráka á meðan hinar stelpurnar fá bara einhverjar stelpur! HAHAHA! En kannski eru þeir ekkert sætir... (???????????)
En þetta er semsagt fríður hópur 17 ára landnámsmanna sem ætla að setjast hér að í eina viku og aðlagast íslenskum lifnaðarháttum. Og við eigum að hjálpa þeim. Svo förum við audda til þeirra í vor og fáum að vera með þeim á þjóðhátíðardaginn sem er víst ekkert nema gaman! Þau hafa öll voða gaman af skautum og dóteríi. Ég ætla að leggja leið mína í Skautahöllina á morgun til að undirbúa mig. Jömundur!´

En þetta er ekki búið enn! Ég er sem sagt í Spænsku 303 núna sem leiðir eiginlega til þess að ég fer í 403 næsta haust ef ég næ prófi og svona. Og viti menn! Ég fer þá til Spánar í viku í lok september!!!!
Like I say, La Vida es Bella!!! Me gusto!
En samt, pínu spæling. Ég nýkomin með bílpróf og þá á bara að rjúka úr landinu og skilja bílinn eftir heima.... nott gúdd! En maður verður víst að fórna einhverju.

Mágkona mín var víst voða fúl þegar hún sá síðuna mína hérna af því ég sagði henni ekki frá henni! Múhahahahahaaaa...! Neinei....

fimmtudagur

Brósi minn segir að fara í göngutúr í rigningu og hlusta á SigurRós í leiðinni sé bara sjálfsmorðshugleiðing. Okey. Ég viðurkenni það að SigurRós spila frekar niðurdrepandi tónlist og allt það en hún er geggjuð... ég meina, í einu laginu er bara geggjað flott svona strengjasveitaspil og svo kemur allt í einu þögn og svo bara gítargrip, eins og þeir séu allt í einu farnir að spila með Sólstrandargæjunum! Þetta er nottla bara góð hugsun að semja svona tónlist fyrir fólk eins og mig :)

Djöfull! Ég ætla aldrei aftur í svörtum, fínum buxum og síðri prjónapeysu í skólann! Mig langar að rífa mig úr þessu ógeði og hlaupa alsber heim og fara í hermannabuxurnar mínar og hettupeysu! Bölvað!

miðvikudagur

Jömundur minn! Listamaðurinn í mér er alveg að brjótast upp á yfirborðið! Eg fór í göngutúr í gærkvöldi (haha, já ég veit, ég í göngutúr, haha). En allavega, ég í göngutúr, ekkert nema ég, SigurRós og rigningin og ég var alveg að springa. Fyrst átti þetta nú bara að vera svona upplífgunardæmi eitthvað, ég bara að tjilla með vasadiskóið en þetta endaði með alsherjar endurlífgun held ég bara. Ég uppgötvaði SigurRós alveg upp á nýtt og var alveg ný manneskja á eftir! Á kafla var ég komin með tárin í augun, bæði vegna þess hvað tónlistin var æðisleg og líka vegna þess að ég var svo fúl yfir því að enginn gat komið með mér á tónleikana þeirra í desember! Svo kom ég heim alveg upp full af hugmyndum um eitthvað voða artí stöff en orkan var búin þannig að ég fór bara að sofa.

þriðjudagur

Fyrsti tíminn í skólanum búinn! Jibbí! Bara nokkur hundruð eftir :) Ég er samt engan veginn að meika þennan dag því maður er í mesta lagi í 10 mínútur í hverjum tíma og þarf svo að bíða í 50 mínútur eða meira eftir næsta! Búhú...

Ég er búin að reyna allt... ég get ekki sett þennan bölvaða teljara á síðuna! En ég held áfram að reyna fram í rauðan dauðann!

Mér fannst alveg hrikalega sorglegt að fara út í morgun. Það var fullt af fólki búið að slökkva á jólaljósunum (samt ekki allir) og ég alveg í mínus yfir því að jólin skyldu vera búin! Hugsið ykkur alla litlu postulíns jólasveinana sem þurfa núna að vera í kassa í heilt ár! Sorglegt... Ég þjáist samt af einhverju skammdegisþuglyndi núna held ég... Ég er allavega rosalega pirruð í skapinu. Það gerir nýtt ár!

Áramótaheitið mitt gengur ennþá vel. Ég held að þetta takist núna ;)

Ég get svo svarið það að ég er hrikalega skotin! Ég er svo skotin í strák sem ég hef varla talað við! En hann er æðiskæði! :o)

mánudagur

Jemundur minn. Þetta ætlaði að taka endalausan tíma að breyta um útlit á síðunni. Það tók mig nebblega alveg heljarinnar langan tíma (ég veit ég er treg) að fatta að það var ekki hægt að bæta neinum andsk.... hlut inn á hitt útlitið... Ekki einu sinni link!

En allavega... ég hef yndi fréttir að færa! Ég, Músin, Kann á gítar!!!! Jeiiiiiii... Ég er reyndar með smá byrjenda erfiðleika og mesti óvinur minn er F gripið en þetta er allt saman að koma og ég er farin að geta spilaði heilu lögin! :) Alveg að fíla þetta í botninn!
Brósin minn ætlar líka að læra á gítar og hann ætlar að vera orðinn betri en Raggi þegar hann kemur heim úr heimsreisunni um Svíþjóð :) Ég ætla samt að vera best!

Skólinn byrjaði í dag og það var bara gaman. Skólinn alveg troðfullur af nýju fólki þannig að mér líður nú ekki eins og einhverjum algjörum busa og fáráðlingi lengur... bara ponku...

sunnudagur

Jæjamm, bara komið nýtt ár og læti! Ég er alveg að fíla þetta nýja ár, búin að standa ágætlega vel við áramótaheitið mitt :) Skólinn byrjar á mánudaginn og ég er alveg að fíla það líka. Ég hef það á tilfinningunni að þetta eigi eftir að verða alveg sérdeilis prýðileg önn.

Það er eitthvað fyllibittupartý hérna heima. Kveðjupartý fyrir vin hans Brósa míns. Liggur bara við að maður sé farinn að óttast um eigið líf og annara. Lætin uppi eru alveg ærandi og greyið amma mín á neðri hæðinni...

Ég var að uppgötva að ég er algjör Meg Ryan fan. Vá hvað ég get samt verið hrikalega væmin.

Áramótin voru nú ekki alveg þau bestu ever. Ég fór í eitthvað partý með Örnu og Sæu og ég þekkti engan nema þær og svo var ég bara rekin út fyrir að fara fram á gang að tala við Sæunni... Það er engin smá harka. Ég veit ekki hvað gellan ætlaðist fyrir, en ef hún hefði rekið alla út sem fóru fram á gang hefði hún verið sú eina sem hefði verið eftir í partýinu. Sorglegt. En ég var allavega búin að finna mér far heim og var hvort eð er bara á leiðinni út þegar Sæunn vildi fara á smá svona fyllerístrúnó. Ég held nebbla að bollan hafi verið aðeins of sterk... hmmmm....