miðvikudagur

Jömundur minn! Listamaðurinn í mér er alveg að brjótast upp á yfirborðið! Eg fór í göngutúr í gærkvöldi (haha, já ég veit, ég í göngutúr, haha). En allavega, ég í göngutúr, ekkert nema ég, SigurRós og rigningin og ég var alveg að springa. Fyrst átti þetta nú bara að vera svona upplífgunardæmi eitthvað, ég bara að tjilla með vasadiskóið en þetta endaði með alsherjar endurlífgun held ég bara. Ég uppgötvaði SigurRós alveg upp á nýtt og var alveg ný manneskja á eftir! Á kafla var ég komin með tárin í augun, bæði vegna þess hvað tónlistin var æðisleg og líka vegna þess að ég var svo fúl yfir því að enginn gat komið með mér á tónleikana þeirra í desember! Svo kom ég heim alveg upp full af hugmyndum um eitthvað voða artí stöff en orkan var búin þannig að ég fór bara að sofa.

Engin ummæli: