mánudagur

Jemundur minn. Þetta ætlaði að taka endalausan tíma að breyta um útlit á síðunni. Það tók mig nebblega alveg heljarinnar langan tíma (ég veit ég er treg) að fatta að það var ekki hægt að bæta neinum andsk.... hlut inn á hitt útlitið... Ekki einu sinni link!

En allavega... ég hef yndi fréttir að færa! Ég, Músin, Kann á gítar!!!! Jeiiiiiii... Ég er reyndar með smá byrjenda erfiðleika og mesti óvinur minn er F gripið en þetta er allt saman að koma og ég er farin að geta spilaði heilu lögin! :) Alveg að fíla þetta í botninn!
Brósin minn ætlar líka að læra á gítar og hann ætlar að vera orðinn betri en Raggi þegar hann kemur heim úr heimsreisunni um Svíþjóð :) Ég ætla samt að vera best!

Skólinn byrjaði í dag og það var bara gaman. Skólinn alveg troðfullur af nýju fólki þannig að mér líður nú ekki eins og einhverjum algjörum busa og fáráðlingi lengur... bara ponku...

Engin ummæli: